Stjarnan hafði betur í botnslagnum
Stjarnan lagði Fram 34:26 í botnslag N1 deildar karla í handknattleik í dag en liðin mættust í Safamýrinni.Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik en Stjarnan náði undirtökunum í þeim síðari. Fram á botninum með tvö stig og Stjarnan þar fyrir ofan með fjögur. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is
26:34 (60.) Leik lokið með sigri Stjörnunnar. Haraldur gerði 6 mörk fyrir Fram, Halldór Jóhann og Matthías Daðason voru með 5 hvor. Vilhjálmmur og Björn gerðu 8 mörk hvor fyrir Stjörnuna og Daníel 7 og í markinu varði Roland 19 skot, þar af eitt vítakast.
25:33 (58.) Stigin komin í höfn hjá Garðbæingum.
23:30 (54.) Stjörnumenn komnir nálægt því að krækja í stigin sem í boði eru. Vilhjálmurmeð 8 mörk fyrir Garðbæinga og Daníel Einarsson sjö en Haraldur er með 6 mörk fyrir Fram.
20:26 (50.) Heimamenn í Fram saxa rólega á forystu Stjörnunnar.
19:26 (48.) Nokkur hasar í leiknum enda fremur lítið dæmt og menn kappsamir.
17:25 (45.) Vilhjálmur komin með 8 mörk, öll með þrumuskotum og hinum megin er Roland í miklu stuði í marki Stjörnunnar.
15:21 (37.) Stjarnan virðist vera að ná tökum á leiknum og hafa gert fimm mörg gegn einu á fyrstu sjö mínútum síðari hálfleiks. Vilhjálmur er komin með sex mörk fyrir Garðbæinga.
15:18 (33.) Garðbæingar byrja síðari hálfleikinn betur og eru komnir með þriggja marka forystu.
14:16 (30) Kominn hálfleikur og Stjarnan gerði tvö síðustu mörkin í fyrri hálfleik, Sverrir Eyjólfsson á lokasekúndunni. Halldór Jóhann er með 4 mörk fyrir fram og Vilhjálmur og Björn Friðriksson eru með fjögur mörk hvor fyrir Stjörnuna.
14:14 (28.) Enn allt í járnum. Halldór Jóhann er með 4 mörk fyrir Fram og Vilhjálmur Halldórsson með fjögur fyrir Stjörnuna.
12:12 (24.) Allt í járnum enn og virðist ekki ólíklegt að það verði svo til loka leiks.
11:10 (22.) Framarar komnir yfir. Halldór og Haraldur með þrjú mörk hvor fyrir Fram og Daníel er með þrjú fyrir Stjörnuna.
9:9 (19.) Siruður Örn Arnarson er kominn í mark Fram og byrjar á ða verja þrjú skot og við það ná Framarar að jafna.
6:8 (15.) Daníel Einarsson er kominn með þrjú mörk fyrir Stjörnuna en hjá Fram eru þeir Halldór Sigfússon og Haraldur Þorvarðarson með tvö mörk hvor.
4:5 (10.) Stjarnan heldur forystunni og það er ekki síst Roland Eradze markverði að þakka, en hann hefur varið mjög vel.
1:2 (4.) Stjarnan skoraði fyrsta mark leiksins, Fram jafnaði og Stjarnan komst síðan yfir.